Fimmtudagur 8. nóvember
Sarah og Kelly eiga afmæli
Dagurinn: Lesa rafsegulfræði, WTFW (weight training for women), kvalaæfing með Linscott og Fayaz, hádegisverður (blésum upp blöðrur fyrir Söru), EE264 tími, afslapp, fyrirlestur um “adaptive filters in adaptive systems” til heiðurs Prófessor Kailath sem á víst að vera guð í einhverjum fræðum en er að fara á eftirlaun, CoHo til að hrella Söru og kveðja Cari vin Kerriar, aftur í Packard eftir stutt stopp í bókabúðinni að kaupa heimadæmapappír, fékk neyðarkall frá Deirdre um að blása upp blöðrur og gefa Kelly (25 ára ritari Deirdre á 2. hæðinni) sem er átti víst líka afmæli í dag en enginn vissi af því, spjallaði við hina sænsku Kerstin um saumaklúbba en hún ákvað að stofna einn eftir að ég sagði henni frá okkar, smá meira rafsegulfræðisullumbull, svo kom Finnur (þessi elska) að ná í mig og við fórum heim þar sem við kveiktum á hitakerfinu í fyrsta skipti síðan við fluttum inn. Það er gaslykt af því (því það er svo nýtt) og það er hávært. Við sjáum hvað setur með áframhaldandi notkun.