2001-11-11Uncategorized Standard
Laugardagur 10. nóvember
Spilakvöld
Skriðum fram úr rúminu seint og síðarmeir og eftir “morgun/hádegis/eftirmidagsmat” hringdi ég heim til Íslands. Alltaf gaman að tala við familíuna! Svo lá leiðin í Packard þar sem ég hitti fyrir frekar þreyttan Fayaz (hann mætti í gærkvöldi) og við reiknuðum saman heimadæmi. Við Finnur hittum síðan Augusto og fyrrverandi herbergisfélaga hans, hann David Hooper, og fórum með þeim að borða mexíkanskan mat og svo í “pool”. Ég og David spiluðum á móti Augusto og Finni og ég held að þeir hafi burstað okkur 2-4… grr… Ég átti samt nokkur góð skot sem komu mér skemmtilega á óvart. 🙂