2001-11-26Uncategorized Standard
Sunnudagur 25. nóvember
Heimferð
Lögðum af stað heim klukkan 11 um morguninn og ákváðum að taka 101 til að fara í Solvang – danska þorpið. Það tók bara 2 tíma að keyra þangað enda engir umferðahnútar. Dvöldum þar í klukkutíma og fengum okkur meðal annars danskan hádegismat (hlaðborð!) og keyptum danskt nammi. Lögðum svo aftur af stað norður eftir og lentum ekki í neinum alvarlegum hnútum. Vorum komin heim klukkan 18:30 sem er bara vel sloppið! 🙂 Settum inn hrúgur af myndum á dagbók #1 og horfðum á sjónvarp liðinnar viku.