Laugardagur 27. október
Vatnsleki
Oh, boy oh boy… Baðkraninn í baðherberginu okkar er farinn að leka. Nú streymir úr honum örlítill straumur af velvolgu vatni og það vill ekki hætta 🙁 Ætli við fáum ekki að komast að því á næstunni hvernig er að díla við landlady-ina ógurlegu… ohboyohboyohboy…
Matarboð
Matt og Deirdre buðu okkar í mat í kvöld. Fengum grillað nautakjöt og með því og svo hafði Deirdre búið til köku sem var voða góð. Finnur varð mjög glaður að fá loksins alvörumat en hann hefur lifað á skyndibitamat undanfarnar 3 vikur því ég hef verið of upptekin til að koma heim fyrr en í fyrsta lagi klukkan níu á kvöldin. Deirdre bauð líka upp á Archers ferskjusnapps sem var algjört sumarbústaðar “deja-vu”. 🙂 Og já… Taly var að trúlofast fjarkærastanum sínum – Congratz Taly! 🙂